Auglýsing

Tómas býður sólarhrings gamlan Big Mac hamborgara til sölu á Brask og brall: „Þetta er uppboð“

Tómas Alexander Árnason, íbúi á Akranesi býður nú sólarhrings gamlan Big Mac hamborgara til sölu á Facebook-síðunni Brask og brall (allt leyfilegt). Tómas keypti hamborgarann á flugvellinum í Orlando um miðjan dag í gær og hvetur meðlimi síðunnar til að gera tilboð.

Tómas hafði ekki fengið ásættanlegt boð í borgarann þegar Nútíminn rædd við hann. „Nei nei ég hef ekki fengið nein alvöru boð. Fólk er mikið að tagga félaga sína og eggja þá til að bjóða,“ segir Tómas.

Öllum er frjálst að bjóða í hamborgarann að sögn Tómasar en uppboðið stendur til klukkan 19:00 í kvöld. „Ég er ekki með neitt óskaverð í hug, þetta er uppboð og hamarinn fellur klukkan 19:00,“ segir Tómas.

Auglýsingin hefur vakið töluverða athygli

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing