Daði Freyr er byrjaður að koma aðdáendum sínum í jólaskap en í gær gaf hann út sitt fyrsta jólalag. Lagið heitir Allir Dagar Eru Jólin Með Þér og er unnið í samstarfi við Stundina okkar.
Daði er búinn að vera duglegur að byggja upp eftirvæntingu en á samfélagsmiðlum taldi hann niður dagana fyrir útgáfu lagsins með því sem hann kallaði Jólalagadagatal.
Hægt er að skoða dagatalið í heild sinni á twitter síðu Daða:
Jólalagadagatalið 2018 – 7 Dagar pic.twitter.com/DiAw8CXC8z
— Daði Freyr ? (@dadimakesmusic) November 24, 2018
Lagið sjálft má síðan finna á Spotify: