Töluverður erill var hjá hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Ölvunarakstur, innbrot, líkamsárás, eignaspjöll og hótanir voru meðal verkefna sem lögreglan þurfti að takast á við í nótt.
Í gærkvöldi var tilkynnt um innbrot í hús í Kópavogi. Þjófarnir höfðu þá farið inn um glugga á húsinu og stolið jólagjöfum og fleiri verðmætum.
Seinna um kvöldið var ölvaður maður handtekinn í Reykjavík grunaður um húsbrot, líkamsárás, eignaspjöll, hótanir og fyrir að fara ekki að fyrirmælum lögreglu.
Þá var ferðatösku stolið af ferðamanni en þjófurinn komst undan á hlaupum. Þjófurinn er ófundinn, þrátt fyrir leit.