Fjölmiðlamaðurinn Ríkharð Óskar Guðnason eða Rikki G, og þroskaþjálfinn Valdís Unnarsdóttir giftu sig í dag eftir 13 ára samband.Rikki sem er dagskrárstjóri FM957 greindi frá þessu á samfélagsmiðlum í dag.
„Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Eftir 13 ára samband var ákveðið gifta sig. Jólabarnið ég mun kunna að meta að eiga brúðkaupsafmæli á aðfangadegi í framtíðinni. Ást og friður,“ segir Rikki.
Sr. Ólafur Jóhann Bergþórsson gaf brúðhjónin saman í Seljakirkju.