Bandaríski grínleikarinn Danny McBride heimsótti Ísland á dögunum eyddi áramótunum hér. Danny sendi aðdáendum sínum áramótakveðju á Instagram og birti mynd af sér í Bláa Lóninu.
Danny fagnaði einnig 42 ára afmæli sínu á Íslandi þann 29. desember síðastliðinn en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins dvaldi hann ásamt fjölskyldu sinni í glæsivillu í Grímsnesi. Þeirri sömu og Justin Bieber dvaldi í árið 2016.
Danny hefur leikið í kvikmyndum á borð við Pineapple Express, This is the end, Sausage Party og Up in the Air ásamt því að hann fór með aðalhlutverk í þáttunum Eastbound and down.