Næsti bardagi Gunnars Nelson í UFC fer fram 16. mars í London en þá mun Gunnar mæta Englendingnum Leon Edwards í einum af aðalbardögum kvöldsins. Brett Okomoto, íþróttafréttamaður ESPN greindi frá þessu á Twitter síðu sinni í gær.
Sjá einnig: Hjón frá bænum Nelson í Kanada skírðu barnið sitt Gunnar
Gunnar sigraði Brasilíumanninn Alex Oliveira í desember í blóðugum bardaga. Hann lýsti yfir áhuga á því að berjast við Edwards eftir þann slag.
Edwards er á mjög góðu skriði en hann hefur nú unnið síðustu sex bardaga sína. Hann barðist síðast í júní á síðasta ári og sigraði þá gegn Donald Cerrone.
Aðalbardagi kvöldsins verður á milli þeirra Darren Till og Jorge Masvidal.
Breaking: Leon Edwards vs. Gunnar Nelson will co-headline UFC Fight Night on March 16 in London on ESPN+, per Dana White. pic.twitter.com/U1q0FbFnrK
— Brett Okamoto (@bokamotoESPN) January 16, 2019