Auglýsing

Fannst látinn í Vaðlaheiðargöngum

Karlmaður á sjötugsaldri fannst látinn í Vaðlaheiðargöngum í gær. Maðurinn sem er málari var að vinna í tæknirými í göngunum þegar hann lést. Þetta kemur fram á Mbl.is

Bergur Jónasson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Norðurlandi eystra, segir í samtali við Mbl.is að ekkert bendi til þess að maðurinn hafi orðið fyrir eitrun eða öðru vinnutengdu sem leiddi til andlátsins.

Lög­regl­unni barst til­kynn­ing um að maður­inn, sem er ís­lensk­ur rík­is­borg­ari, hefði fund­ist í aust­asta hluta gang­anna um hálf­fjög­ur­leytið í gær. Göng­un­um var í fram­hald­inu lokað í aðra átt­ina í um tíu mín­út­ur til þess að viðbragðsaðilar hefðu aðgengi að svæðinu.

Ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti en bíða þarf krufningar til að staðfesta dánarorsök.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing