Næsti gestur Loga í Með Loga er einn ástsælasti tónlistarmaður Íslands, Björgvin Halldórsson. Þátturinn verður sýndur í opinni dagskrá í kvöld klukkan 20.10 í Sjónvarpi Símans. Björgvin útskýrir meðal annars fyrir Loga hvaðan hugtakið „bolur“ kemur.
„Þetta er ekki í niðrandi merkingu. Þetta er límið sem heldur þjóðfélaginu saman. Þetta er fólkið sem fer í vinnuna á morgnana og kemur heim á kvöldin, vinnur tvær vinnur og svona,“ segir Björgvin.
Sjáðu brot úr þættinum í spilaranum hér að ofan.