Nýjasta kvikmynd Quentin Tarantino var frumsýnd á Cannes kvikmyndahátíðinni í gær. Áhorfendur stóðu upp og klöppuðu samfleytt í sjö mínútur eftir að kvikmyndinni lauk.
Sjá einnig: Hvítur, hvítur dagur meðal mest umtöluðu mynda í Cannes
Myndin er sú níunda sem Tarantino leikstýrir og sú fyrsta sem er sýnd á Cannes hátíðinni síðan Inglourious Basterds árið 2009. Myndin fjallar um morð Manson-klíkunnar á Sharon Tate en margir af frægustu leikurum Hollywood leika í myndinni. Margot Robbie, Dakota Fanning, Brad Pitt, Leonardo DiCaprio og Al Pacino eru á meðal leikara í myndinni.
Sjá einnig: María Birta leikur Playboy kanínu í nýjustu kvikmynd Tarantino
Fyrir frumsýningu myndarinnar á Cannes var gefinn út önnur stiklan fyrir myndina sem beðið er eftir með mikilli eftirvæntingu. Viðbrögðin á Cannes munu ekki minnka spennu kvikmyndaaðdáenda.
Sjáðu nýju stikluna