Ungur karlmaður um tvítugt féll niður hátt í sex metra í vinnuslysi í Kópavogi í morgun. Slysið varð á vinnusvæði en varðstjóri gat ekki gefið upplýsingar um tildrögin. Þetta kemur fram á vef mbl.is
Þar er haft eftir slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu að maðurinn hafi verið fluttur á slysadeild og við fyrstu skoðun virtist svo að ákverkar hans hafi ekki verið miklir.