Hælisleitandi sem dvaldi í búsetuúrræði Útlendingastofnunnar á Ásbrú í vor var gripinn við að safna rafgeymasýru. Hann geymdi sýruna sem hann fékk úr rafgeymum bifreiða í brúsa. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Öryggisvörður á svæðinu fann sýruna í vörslu mannsins og lét lögreglu vita. Ekki liggur fyrir til hvers maðurinn var að safna sýrunni. Honum var vísað úr landi þegar niðurstaða lá fyrir um umsókn hans um hæli hér á landi.