Instagram stjarnan Svetlana Reus er fræg fyrir nektarmyndir sem hún tekur víða um heim og birtir á samfélagsmiðlum. Hún greindi frá því í viðtali við breska miðilinn The Sun að Ísland væri besti staðurinn til þess að taka nektarmyndir.
Svetlana gengur undir nafninu Lighty Light á samfélagsmiðlum en hún hefur setið fyrir nakin í stöðum á borð við Ástralíu, Balí og Maldíveyjum ásamt auðvitað Íslandi og fleiri stöðum.
Hún segir að Ísland sé besti staðurinn fyrir slíkar myndatökur. „Ég var nakin á stóru lúpínusvæði með ótrúlegt útsýni til fjalla og einnig fyrir framan leynifoss umkringd ótrúlegum litum. Það er ekkert mál að finna fallega staði á Íslandi,“ segir hún.
Þessi 30 ára fyrirsæta er með um 20 þúsund fylgjendur á Instagram. Hér má sjá nokkrar myndir sem hún hefur birt frá Íslandi.