Andri Yrkill Valsson, blaðamaður Morgunblaðsins, gagnrýnir Knattspyrnusamband Íslands í bakverði blaðsins í dag. Andri veltir því fyrir sér hvort leikir í kvennadeildinni séu notaðir sem tilraunavettvangur um getu dómara.
Andri kafar ofan í tölfræði dómara í leikjum í kvenna- og karladeildum í efstu deildunum í fótbolta. ,,Í efstu deild karla eru búnir 56 leikir í sumar sem dæmdir hafa verið af 11 dómurum. Einn dæmdi sinn fyrsta leik í síðustu umferð, en annars hefur enginn dæmt færri en fjóra leiki í deildinni í sumar,“ skrifar hann.
„Í efstu deild kvenna eru búnir 35 leikir í sumar sem dæmdir hafa verið af 16 dómurum. Fimm þeirra hafa dæmt aðeins einn leik og aðrir fimm hafa dæmt tvo leiki. Í síðustu umferð gerðist það í fyrsta sinn að dómari sem hefur dæmt í efstu deild karla í sumar dæmdi í efstu deild kvenna.“
Andri spyr hvort að KSÍ sé ekki hreinlega að sýna konum óvirðingu með þessu og hvort það sé frekar í lagi að dómarar geri mistök í kvennaboltanum en karlaboltanum.
,,Er þetta eitthvað annað en hrein óvirðing? Auðvitað þurfa dómarar að byrja einhvers staðar til þess að komast í fremstu röð og það tekur tíma að ná takti. En lítur KSÍ svo á að það sé betra að gera mistök í kvennaboltanum en karlaboltanum? Hver er ástæðan fyrir þessu?.“
Í Hlaðvarpsþættinum Heimavöllurinn á Fótbolta.net, hafa dómaramál í Pepsi Max deild kvenna verið mikið rædd en í þættinum er kvennafótbolta á Íslandi gerð skil. Í nýjasta þættinum sagði Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir sem var gestur þáttarins að það þurfi að bæta dómgæsluna í deildinni.
Hulda Mýrdal, þáttastjórnandi, tók undir með henni: „Við erum að reyna að bæta umfjöllun, við erum að reyna að setja þetta á hærra plan, dómararnir verða að koma með.“