Útsýnið úr Alþjóðlegu geimstöðinni er undravert og það er ótrúlegt að hugsa sér að þetta sé það sem geimfararnir sem búa á stöðinni sjá út um gluggann á meðan þau fá sér morgunmat.
Vissulega höfum við flest séð tölvugerðar útgáfur af þessu í bíómyndum áður, en þetta er alvöru upptaka af því sem Alþjóðlega geimstöðin sér þegar hún flýgur umhverfis jörðina.