Auglýsing

Erlendir ferðamenn keyrðu um á 140+ um helgina – „Alls voru 125 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur“

Lögreglan á Norðurlandi vestra sagði frá því á Facebook að það hefði verið mikið að gera hjá þeim um helgina í verkefnum tengdum umferð.

Enda voru 125 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur um helgina og þar af þrír erlendir ferðamenn sem voru að keyra á meira en 140 km hraða.

Mikill erill var hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra um helgina í verkefnum tengdum umferð. Mikill umferð var um umdæmið og færð líkt og á sumardegi.

Alls voru 125 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur um helgina. Þeir sem hraðast óku mældust á 157, 142, og 143 km/klst., voru það allt erlendir ferðamenn. Ein afskipti leiddu af sér handtöku vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing