Gunnar Nelson keppir í UFC næstkomandi laugardag við Leon Edwards í London. Það verður mjög spennandi bardagi – en skv. Betsson þykir Edwards líklegri til sigurs – líkt og má sjá hér:
Líkt og sjá er Gunnar með stuðulinn 2,27 á móti 1,63 hjá Edwards. Og því ljóst að þetta verður verulega mjótt á munum.
Við ræddum við tvo lífskúnstera um hvernig bardaginn mun fara.
„Já já, ég spái samt alltaf Nelson sigri. Óháð öllu“, sagði Erpur Eyvindarson – eða Blaz Roca eins og hann er betur þekktur.
Í sama streng tók samfélagsmiðlastjarnan Binni Löve:
„Gunnar fer hægt af stað – en hann tekur þetta á dísilvélinni. Úthaldið mun skipta máli.“
Hér að neðan má sjá John Kavanagh þjálfara Gunnars og Conor McGregor tjá sig um bardagann.
Bardaginn hefst 22:30 næstkomandi laugardag 16. mars.