Hún Ragga Nagli skrifaði opnu Facebook færsluna hér fyrir neðan og það er óhætta að segja að hún hefur vakið mikla athygli.
Í færslunni segir Ragga frá skotheldu fitubrennsluefni sem svínvirkar og það góða er að allir sem vilja missa fitu fyrir sumarið geta nýtt sér það á einfaldan máta.
Viltu missa fitu fyrir sumarið?
Tálga smjör af skotti.
Skafa mör af mallakút.
Rífa lýsi af lærum.
Á markaðnum er skothelt fitubrennsluefni sem svínvirkar.
Það er eitt mest rannsakaðasta efnið á markaðnum.
Þegar þeir sem taka þetta efni inn eru bornir saman við þá sem gera það ekki má sjá augljós áhrif þess á lýsisleka af skrokki.
Það auðveldar fólki að halda sig við efnið í mataræði því áhrif þess á framheilann til að taka betri ákvarðanir eru mögnuð.
Þetta efni heldur jafnvægi á svengdar og sedduhormónum
Leptín sem er sedduhormónið kikkar inn fyrr.
Það hjálpar þér að vera saddur fyrr og af minna magni
Ghrelin sem er svengdarhormónið er mun lægra en hjá hinum
Þú ert 20-30% betri í æfingum en þeir sem taka ekki þetta efni
Þú ert 20-30% lengur að þreytast á æfingu en þeir sem taka ekki þetta efni
Rannsóknir sýna 55% meira fitutap hjá þeim sem taka þetta efni en hjá hinum sem taka það ekki.
Efnið heldur jafnvægi á blóðsykri og dregur úr pervertískum löngunum í súkkulaði og skjóta orku.
Þeir sem sniðganga þetta efni borða að jafnaði 350-500 kcal meira á dag og meira af einföldum kolvetnum
Það er aukin framleiðsla á vaxtarhormónum sem hjálpar við uppbyggingu vöðva við inntöku .
Þeir sem taka það ekki inn hafa hærra kortisól sem hindrar niðurbrot á fitu og brýtur niður vöðva
Þetta efni er aðgengilegt alls staðar í heiminum.
Allir geta nálgast það.
Það hefur verið á markaðnum frá örófi alda.
Það er ekkert aldurstakmark
Það er algjörlega ókeypis.
Það er 100% náttúrulegt og án allra aukaefna
Og það er löglegt.
Það eina sem þarf að gera er að slökkva á símanum, opna glugga, slökkva ljósin og knúsa koddann.
Þetta efni heitir átta tíma svefn.