Það er ekki óalgengt að sjá stjörnurnar í fanta formi á ströndinni og fyrirsagnir eins og „Komin í magnað form, 5 vikum eftir fæðingu sonar síns“
En nú hefur læknirinn Dr Vicken Sahakian sagt frá því að stundum hafi þessar konur ekki einu sinni verið óléttar, heldur bara að þykjast.
Hann segir að það sé algengara en margur heldur að frægar leik og söngkonur ráði til sín staðgöngumæður og þykist svo vera ófrískar í 9 mánuði.
Þetta geri þær til þess að verja feril sinn en útlitið sé svo mikilvægt í nútíma samfélagi að þær geti ekki tekið áhættuna á því að óléttan skilji þær eftir með slitför og aukakíló.
Bæði Sarah Jessica Parker og Nicole Kidman notuðust báðar við stagöngumæður þegar þær áttu börn sín en fóru aldrei leynt með það.
Dr Vicken Sahakian segir að margir af viðskipta vinum sínum séu heimsfrægar konur og fullyrðir að sumar þykist raunverulega vera óléttar til að ekki komist upp um það að þær hafi ráðið staðgöngu móður.