Já það er víst ekki það sama að vera Jón og Séra Jón. Þessi 15 ára stelpa fékk heldur betur veglega afmælisveislu en pabbi hennar sem er lögfræðingur hélt 6 milljón dollara veislu fyrir hana. Á meðal þeirra sem komu fram í veislunni var Pitbull og Nick Jones.
Maya Henry heitir stelpan og á yfir 18 þúsund fylgjendur inn á Instagram þar sem hún setur reglulega myndir af sér með allskyns stjörnum, þar á meðal Justin Bieber, One Direction og meira að segja forsetaframbjóðandan Hillary Clinton.
Hún fékk að sjálfsögðu sérsaumaða kjóla frá Rolando Santana. Förðunarfræðingur Kardhasian fjölskyldunnar gerði make up-ið hennar ásamt því að það var samið lag sérstaklega fyrir afmælið.
Fjölskyldan mætti á svæðið á sex Rolls Roys bílum!!
Hvernig var 15.ára afmælið þitt? Minnir að ég hafi farið í bíó og bara verið nokkuð sáttur.