Það er ótrúlegt hvað jaðarsport er búið að þróast bilaðslega á síðustu árum. Allir keppast um að koma með nýtt og nýtt trikk og láta sportið sitt blómstra á sama tíma. En það er eitt trikk sem er búið að vefjast fyrir mörgum og það er tvöfalt backflip.
Sænski snillingurinn Daniel Bodin er búinn að vera æfa sig fyrir X-Games og er núna búinn að brjóta blað í sögunni. Hann er búinn að lenda trikkinu sem allir vildu lenda en fáir þorðu að prufa….