Barþjónaklúbbur íslands stendur fyrir hinni árlegu kokteilhátíð í samstarfi við helstu veitinga- og skemmtistaði í Reykjavík dagana 1. – 5. febrúar n.k.
Hátíðin hefst miðvikudaginn 1. febrúar og stendur til sunnudagsins 5. febrúar, þar sem henni líkur með úrslitakeppni í Íslandsmóti barþjóna og keppni milli veitingastaða í kokteilgerð í Gamla bíó.
Undankeppnir fara fram fimmtudaginn 2. febrúar og opnar Gamla bíó kl 19:00.
Barþjónaklúbbur Íslands var stofnaður árið 1963 en árið á eftir hóf klúbburinn að etja saman barþjónum landsins í kokteilagerð og hefur vinningshafi ávallt hlotið nafnbótina Íslandsmeistari barþjóna og keppt fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti barþjóna sem að þessu sinni fer fram í Kaupmannahöfn í september.
Göngutúr um miðbæinn
Allir helstu umboðsaðilar áfengra drykkja verða með kynningu á sínum vörum á meðan á keppni stendur og von er á góðri stemmningu í kringum viðburðina. Samstarfsaðilar Reykjavík Cocktail Weekend munu bjóða upp á sérstakan kokteilseðil sem samanstendur af kokteilum á tilboðsverði dagana 1. – 5. febrúar til klukkan 23.00 öll kvöldin og því um að gera að taka göngutúr um miðbæinn og skilja bílinn eftir því fjöldi góðra drykkja verða á boðstólnum.
Dómnefnd skipuð af Barþjónaklúbbi Íslands mun ganga á milli og smakka valda drykki af kokteilseðlum þátttökustaðanna og velja þrjá bestu drykkina sem keppa svo til úrslita á sunnudagskvöldið í Gamla bíó, vinningsdrykkurinn hlýtur nafngiftina Reykjavík Cocktail Weekend drykkurinn 2017.
Vín fróðleikur og fræðsla – erlendir sérfræðingar
Einnig býður Barþjónaklúbburinn upp á fróðleik, fræðslu og kynningar, svokallað „Master Class“ á Center Hotel Plaza laugardaginn 4. febrúar milli kl. 14 & 19, en þar býðst gestum að smakka hinar ýmsu tegundir af áfengi ásamt því að njóta fróðleiks frá þeim sem best til þekkja frá hverju umboði fyrir sig.
Fyrirlestrar verða í boði á þessum tíma og mun fjölbreytileikinn ráða ríkjum, þar sem að erlendir gestafyrirlesarar í bland við innlenda sérfræðinga koma og fræða okkur um vínheiminn.
Það er von okkar að sem flestir láti sjá sig á Reykjavík Cocktail Weekend og njóti með okkur góðra veiga í bland við einstakan fróðleik, skál í boðinu!
Aðgangseyrir 1.000 kr. á forkeppnina á fimmtudeginum sem og á Master class á laugardeginum.
Dagskráin fyrir Reykjavík Cocktail Weekend 2017
Miðvikudagur:
● Kokteilar í Reykjavík Cocktail Weekend keppninni dæmdir á stöðunum sjálfum.
● Staðir með uppákomur í samstarfi við umboðsmenn.
○ Hard Rock Cafe – Malibu flair kokteilaveisla með ísraelska flair meistaranum Amit Vinter
○ Pablo Discobar – Milljón dollara miðvkudagskvöld þar sem Don Julio, Tanqueray ten og
Ron Zacapa kokteilar á frábæru verði.
Fimmtudagur:
● Gamla bíó / húsið opnar kl. 19
● Undankeppnir Íslandsmóta
● Umboðsmenn með kynningar á vörum sínum
● Staðir með uppákomur í samstarfi við umboðsmenn.
○ Vegamót – Bacardi Mojitokvöld með trúbbunum Sigga Þorbergs og Birki Skúla.
○ American Bar – Breezer Tangokvöld með Hreimi og félögum.
○ Pablo Discobar – Reykjavík Cocktail partý með Beefeater
○ Jacobsen Loftið – Nordés Gin Kokteilakvöld
○ Slippbarinn – Don Julio veisla, tequila eins og þú hefur aldrei smakkað það áður.
Föstudagur:
● Staðir með uppákomur í samstarfi við umboðsmenn
○ barAnanas – Fernet Branca madness og Hermigervill í stuði.
○ Kofinn – Poppaður Finlandia föstudagur.
○ Hard Rock Cafe – Don Julio margarítu partý.
○ Jacobsen Loftið – Alvöru Havana Club kúbu kokteilakvöld.
○ Geiri Smart – Woodford Reserve Pop up, Símon FKNHNDSOM heldur uppi ljúfum
tónum.
Laugardagur:
● Fróðleikur og kynningar / Hótel Plaza / 14:00 – 18:00
● 2 salir þar sem umboðsmenn munu bjóða upp á fyrirlestra
● Umboðsmenn verða með kynningar á svæðinu
● Staðir með uppákomur í samstarfi við umboðsmenn
○ Petersen Svítan – Bombay Saphire PopUp með stjörnubarþjóninum Rafni Þóris.
○ Jacobsen Loftið – Don Julio margaritu kvöld.
Sunnudagur:
● Gamla bíó / 19:00-24:00
● Úrslit í Íslandsmóti, vinnustaða keppni og kokteil keppninnar kunngjörður
● Kvöldverður og partý