Auglýsing

Jón vann geggjaða ferð til London með Betsson – Gat ekki komið á betri tíma!

Hér er mynd af hinum nýgiftu taka við vinningnum frá Jóni Óla Ólafssyni hjá Gaman Ferðum en það er að sjálfsögðu Betsson sem gefur vinninginn.

Betsson var nú með leik á dögunum á Facebook þar sem þeir gáfu miða á leik Arsenal – Manchester City sem fer fram þann 31. mars næstkomandi. Um er að ræða sannkallaða lúxusferð með Gaman Ferðum þar sem nánast allt er innifalið, flugið, gisting fyrir tvo á Cumberland Hotel í London og miði fyrir tvo á stórleikinn.

Sá heppni sem vann miða á leikinn heitir Jón Ingi Jónsson – en hann ákvað að bjóða konunni, Birnu Dögg Jónasdóttur með sér. Og það mætti segja að vinningurinn hafi komið á ansi heppilegum tíma.

„Konan átti afmæli daginn sem ég vann – og svo vorum við að gifta okkur síðasta laugardag. Þannig þessi ferð kom eins og himnasending“, sagði Jón Ingi sigurreifur.

Það mætti segja að karma sjái um sína – þú hefur átt næga innistæðu þar?
Já – ekki spurning.

Það hefur ekki komið til greina annað en að bjóða konunni þótt að þetta hafi verið fótboltaleikur?
Félagarnir létu auðvitað aðeins heyra í sér – en það kom aldrei annað til greina en að bjóða konunni. Við erum búin að fá pössun fyrir börnin okkar, þannig nú eigum við tíma fyrir okkur sjálf.

Á að gera eitthvað sniðugt í London – fyrir utan leikinn?
Verður bara gaman að skoða borgina – og svo langar mig líka itl að sjá Queen Show.

Við á Menn.is óskum hinum nýgiftu innilega til hamingju með brúðkaupið og þessa himnasendingu!

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing