Nokkrir parkour drengir á Akureyri gerðu myndband þar sem þeir voru að stökkva úr lyftu og á risa stóra uppblásna dýnu. Þeir tóku með sér lítið trampolín og sýndu alls konar listir á leiðinni niður.
People Are Awesome sáu þetta myndband og deildu á sinni síðu og núna er búið að horfa á þetta 6.6 milljón sinnum þar. Fáranlega vel gert hjá þessum norðlensku snillingum.