BYKO hélt leik um daginn í samstarfi við Trendnet – en hann gekk út á að taka mynd af rými sem þarfnast yfirhalningar, birta á Instagram og merkja #bykotrend.
Svana hjá Svart á hvítu var gestadómari auk tveggja fulltrúa frá BYKO og fórum við saman í gegnum myndirnar. Mikill fjöldi mynda bárust og var virkilega úr vöndu að velja því margar myndir komu sterklega til greina.
Svana fer nánar yfir þetta á blogginu hjá sér og tilkynnir þar sigurvegara leiksins sem hlýtur 100.000 kr. gjafabréf í Hólf & Gólf!
Hún Sólveig Bergsdóttir keypti sér nýlega íbúð og hefur verið að gera hana upp. Sólveig tók þátt í #BYKOTREND leiknum og var hennar mynd valin besta myndin og hlaut hún verðlaunin.
@sollabergs
Það verður gaman að fá að fylgjast með þessum framkvæmdunum!