Það er ömurlegt hvað innbrot eru orðin algeng hérna á litla Íslandi. Það er eins og ekkert fái að vera í friði lengur.
Þórhildur lenti í því að koma að bílunum sínum með brotnar rúður hún sagði að það hafi verið búið að brjótast inn í einn bíl í viðbót sem var á stæðinu í Frostaskjólinu.
„Lögreglan sagði að það væri hrina í gangi.“ – Þórhildur
Þetta er búið að gera íbúa Vesturbæjar frekar órólega og fólk er hvatt til þess að hafa samband við lögreglu strax ef það verður vitni af einhverjum látum.