Hver hefur ekki heyrt hjá fólki alveg niður í fertugt að það sé orðið of gamalt til að gera eitthvað. June Gill sem er frá Castleford treður sokk upp í þá sem segjast vera of gamlir. Hún er 78 ára gömul og elskar að fara í fallhlífastökk, rafting og ganga upp á fjöll.
Hún starfaði sem hjúkrunarfræðingur en eftir að hún hætti að vinna er hún búin að ferðast um heiminn og prufar alls konar jaðarsport. Hún safnar áheitum með því að gera þetta allt og allur ágóðinn rennur til sjúkrahúsins sem hún starfaði hjá.
June fer í ræktina þrisvar í viku til að halda sér í formi fyrir öll ævintýrin sín. Planið hennar er að ganga á flugvélavæng á afmælinu sínu þegar hún verður áttræð.