Hard Rock Café Reykjavik hélt formlegt opnunarpartý 8.júní síðast liðinn. Þar var engu til sparað.
Frábærara veitingar og skemmtiatriðin ekki af verri hlutanum. Mugison byrjaði partýið á Taflborðinu á Lækjargötu og síðan fór fram „ribbon“ seremónía Hard Rock, þar sem yfirmenn brjóta gítara.
Að því loknu var haldið inn á staðinn þar sem Bubbi tók nokkur lög, síðan Ásgeir Trausti og GusGus lokaði kvöldinu með brjálaðri stemmningu.
Allur ágóði í fjáröflun kvöldsins rann til BUGL og Ljóssins. Allir gítara sem voru brotnir voru ekki nothæfir, en Hard Rock gefur hinsvegar einn gítar fyrir einn brotinn einnig til góðgerðarmála