Brandon Rogers var unglæknir sem kom fram í America Got Talent og heillaði alla upp úr skónum. Hann hafði rosalega jákvæða og góða sýn á lífið – fyrir utan að hafa ótrúlega söngrödd.
En hann lenti í mannlegum harmleik. Hann var farþegi í bíl hjá ökumanni sem missti stjórn á bílnum og keyrði á tré.
Á meðan ökumaðurinn slapp án mikilla meiðsla – þá lét Brandon lífið – og fólk hefur nú horft á magnaða frammistöðu hans og ekki getað stillt sig um að tárfella.
Hrikalega sorglegt.