Pablo Discobar hefur skarað fram úr á íslensku bæjarsenunni fyrir frumlega og flotta kokteila. Staðurinn einkennist af sterkum litum, bleikum flamingó fuglum, diskókúlu og loforði um glimmer og gleði.
Á Happy Hour miðvikudögum á Pablo Discobar lifa allir hátt. Kokteilar og kampavín á tilboðsverði! Hefðbundinn happy hour er að sjálfsögðu á sínum stað frá 16-18, bjór á dælu og vín í glösum á 50% afslætti.
Það er því tilvalið að fríska upp á vikuna með þessum skemmtilega viðburði.