Hér er líklega það sem gæti kallast með réttu ice-breaking news – en það virðist vera sem ís frá ísbúðinni Valdís sé komin í búðir.
Grandvar blaðamaður okkar rakst á þessa fernu í Krónunni í Breiðholti nú fyrir stundu. Hér er um að ræða tegundirnar: Danskan Lakkrís, Súkkulaði og kökudeig, salthnetur og karamellur og ljósan súkkulaðiís með hnetusmjöri.
Svo virðist sem maður þurfi þá ekki lengur að fara út á Granda heldur geti kippt einum Valdís með sér í Breiðholtinu. Algjört 101 múv í 109.
Við frestum þá kannski megrunarkúrnum um nokkra daga.