Flórídana hefur ávallt verið þekkt fyrir einstaklega bragðgóða safa en á undanförnum árum hafa þau stækkar úrval sitt af heilsusöfum til muna og eru þeir hver öðrum vinsælli.
Floridana Appelsínusafi er 100% hreinn og bragðgóður safi úr hágæða appelsínum. Safinn er ríkur af C-vítamíni og tilvalinn í ræktina eða fyrir fólk á ferðinni.
Floriadana Goji safi. Gojiber eru gúmmelaði sem hafa verið notuð sem lyf í asískum lækningum í þúsundir ára, enda eru þau talin efla ónæmiskerfið, vernda lifrina, styrkja blóðrásina og ýmislegt fleira.
Floridana Engifer safi. Engifer er algjör hátíð fyrir líkamann, enda talið áhrifaríkt gegn kvefi, bætandi fyrir meltingu og bólgueyðandi.
Floridana andoxunarsafinn fær frumurnar til að fagna, enda eru andoxunarefni styrkjandi fyrir ónæmiskerfið og hjálpa til við að verjast öldrun.
Floridana Grænn er algjör snilld með vítamínríku spínati, hveitigrasi, trefjum, spírulínu og allskonar sem fær líkamann til að dansa.
Floridana Heilsusafi er sneisafullur af hollustu sem gefur þér orku frá morgni til kvölds.
Floridana epla- og rabarbarasafi er einstök og spennandi blanda úr 80% eplum, 10% rabarbara, 6% hindberjum, 3% jarðarberjum og 1% aroniaberjum. 100% safi sem er frískandi, ljúffengur og fagurrauður. Þú verður að smakka!