Ellingsen gerði stutta mynd á dögunum sem sýnir að það þarf ekki alltaf að taka marga daga eða að keyra hundruði kílómetra til að fara í göngur í stórbrotnu landslagi. Það er mikið af náttúruperlum rétt utan við borgina.
Myndin sýnir líka að íslenska veðrið getur breyst fljótt og því mikilvægt að vera í réttum búnaði. Columbia Sportswear er eitt stærsta og vinsælasta útivistarmerki heims og Ellingsen er umboðsaðili þess á Íslandi. Ellingsen býður upp á gríðarlegt úrval frá Columbia Sportswear á alla fjölskylduna.
Niðurstaðan:
Þú getur skotist í Ellingsen á sunnudegi, gengið á Helgafell, fengið þér kaffi og kleinu á þínu uppáhaldskaffihúsi en samt náð helgarsteikinni hjá mömmu kl.18:00
#hikinginthehood #gengiðígrendinni
Göngugarpar: Melkorka Ýrr Yrsudóttir Þórður Björn Úlfarsson Hame
Framleiðandi: Mint Production Davíð Arnar Oddgeirsson
Sidekick: Benedikt Bjarnason ( í hvítum strigaskóm, keypti sér gönguskó að tökudegi loknum )