Nú er tækifæri til þess að fá frekari upplýsingar um nám í Ástralíu. Föstudaginn 27. október klukkan 17:30 mun fulltrúi frá Griffith University koma og halda stutta kynningu á skólanum.
Komdu og kynntu þér það fjölbreytta nám sem Griffith University býður uppá og svör við spurningum eins og:
- Hver er umsóknarfresturinn?
- Hvaða nám get ég stundað?
- Hvernig er með tryggingar?
- Hvernig finn ég húsnæði?
- Hvað get ég gert í frítíma mínum?
- Hversu góð þarf enskukunnátta mín að vera?
- Þarf ég að taka tungumálapróf?
Að lokinni kynningu verður fulltrúi Griffith University ásamt sérfræðingi okkar í námi erlendis svo innan handar til að spjalla við þig og svara þeim spurningum sem gætu komið upp.
Dagsetning: Föstudagurinn 27. október 2017
Staður: Skrifstofa KILROY, Lækjartorg 5, 3. hæð, 101 Reykjavík
Tími: 17:30-19:30.
Athugaðu að takmörkuð sæti eru í boði svo við biðjum þig um að skrá þig HÉR.