Er korter í Hrekkjavökupartý og þú veist ennþá ekki hverju þú átt að klæðast?!?!?!
Ekki örvænta – hér eru nokkrar „Last Minute DIY“ hugmyndir sem gætu bjargað þér!
#1. NördiÞað sem þú þarft eru gleraugu og reiknivél. Einnig hægt að bæta við axlarböndum.
#2. Partýdýr
Þetta getur ekki klikkað. Dýragríma og partýhattur – Ekki gleyma glasinu.. Wrarrr
#3. Bubblubað
Þetta er ekkert mál, hvítarblöðrur og svo geturðu valið hvaða fylgihluti þú vilt – Svamp, skrúbbbursta eða sjampó brúsa….
#4. Múmía
Gætir þurft smá hjálp við þetta…
#5. Skyggingar kennsla
Einfalt, þú byrjar að mála þig en klárar ekki…
#6. Raining Man
Prentar út nokkra myndarlega karlmenn og festir þá á band og við regnhlíf. Einnig hægt að krydda uppá þetta og prenta út pólitíkusa- svo í tilefni kosninga!
#7. Pop Art persóna
Skemmtilegt!
#9. Rainbow Barf á SnapChat
Ekki mikil vinna en brilljant útkoma!
#10. „When Life Gives You Lemons“
Einfalt – skrifa LIFE á bol og kaupa sítrónur. Gætir fengið gríðalega athygli fyrir þennan búning og notað sítrónurnar í eitthvað sniðugt þegar líður á kvöldið.
#11. Mjá mjá
Ef þú ert gjörsamlega metnaðar sneyddur en vilt eða „verður“ að vera með geturðu púllað Mjá mjá!
#12. DónaDraugar
Þetta er sjúklega skemmtilegt en ef þú ert gaur og átt ekki systur eða kærustu færi ég varlega í að biðja vinkonur um að lána mér nærföt…
#13. Villuboð
Maður horfir á þennan og hugsar Vá hvað þetta er sniðugur en samt svo einfalt!
#14. Túristar
Það er auðveldlega hægt að leika sér með þetta – Bakpoki, pungur, kíkir, selfiestick, myndavél, litríkar úlpur, lundabangsi, I <3 Iceland, landakort… Bara hvað viltu?
#15. Dyravörður
Svört sólgleraugu og svartur bolur. Einfalt. Svo gætirðu up grade-að og farið í jakkaföt þá ertu orðin/nn njósnari!
#16. Wednesday Addams
Virkar bara ef þú ert með „sítt“ hár – tvær fléttur, svört föt og kraginn góði!
#17. Núdisti í verkfalli
Þetta meikar fullkomið sens og þú getur verið í hvaða fötum sem er – þess vegna snjógalla!
#18. Guðsgjöf
Þetta er mjög gott!