Það er langt síðan fólk fór að tala um gervigerind. Þegar myndin A.I. eftir Steven Spilberg kom út árið 2001 hugsuðu allir að það væri langt í að vélmenni með gervigreind færi að ganga um jörðina.. Kannski er ekkert svo langt í það eftir allt!
Fyrir ári síðan póstuðum við myndbandi af vélmenninu Sophia sem hægt er að sjá hér. Hún var þá í viðtali hjá CNBN og þótti það frekar óhugnanlegt hvað hún var raunveruleg og gat svarað spurningunum vel.
Í dag er Sophia fyrsta vélmennið í sögunni til að fá ríkisborgararétt en Sádí Arabía veitti henni einn slíkan núna í október.