Snapchat-stjarnan Aron Mola og Hildur unnusta hans eiga von á sínu fyrsta barni í janúar. Mikil tilhlökkun og spenna ríkir á heimilinu – Skiljanlega!
Undanfarið hefur Aron greinilega mikið pælt í því hvernig Moli Junior muni líta út – En hann verið að deila barnamyndum af sér inná Instagram og við eina myndina skrifar hann ,,Það er lítill moli að koma í janúar. Ætli hann verði töffari eins og pabbi sinn?“
Hvort Moli Junior verði eins og pabbi eða mamma verður bara að koma í ljós – Eitt er þó víst – Þetta verður algjör krúttmoli!