Securitas gaf út auglýsingu nýlega þar sem þeir eru að hvetja ungt fólk til að sækja um starf hjá sér.
Auglýsingin hefur farið fyrir brjóstið á mörgum mæðrum og þykir fordómafull og ósmekkleg.
Í auglýsingunni situr ungur maður í sófanum heima í stofu og er að horfa á sjónvarpið. Í bakgrunninum heyrist í mömmu hans tuða í honum yfir því hversu latur hann sé og hvað það þarf að gera mikið fyrir jólin.
Skyndilega heyrist karlmannsrödd segja „Er það þetta sem þú vilt í jólafríinu? Viltu ekki frekar vinna þér inn pening? Erum að ráða núna“
Auglýsingin endar svo því að maðurinn er byrjaður að vinna sem öryggisvörður.
Hvað finnst þér?