Ásdís Rán sem nýverið gaf út bók sína Valkyrjur, setti nú inn á Facebook-síðu sína ákall til Íslendinga. Hún leitar að Casanova sem stakk af út um glugga í Einholtinu.
Hér er það sem hún segir:
Hann Casanova stakk af út um gluggan í dag hér í Einholti, ég finn hann hvergi! Hann er á einhverju lóðeríi kallinn mér þætti vænt um ef þið gætuð deilt þessu fyrir mig og haft augun opin hér í miðbænum takk.