Sjónvarpsmaðurinn Rikki Gé fékk áskorun frá félaga sínum Auðunni Blöndal nú í haust um að komast í súperform fyrir jólin 2017.
Við tóku mánuðir af stífri einkaþjálfun hjá Audda – og viti menn Rikki Gé, sýndi og sannaði að það er allt hægt með góða og trausta vini sem styðja við bakið á manni.
Auðunn Blöndal setti mynd af þeim þar sem þeir nutu uppskeru erfiðisins á Apótekinu:
Gæti ekki verið stoltari af Rikka vini mínum! Á 3 mánuðum tók hann af sér 12,5 kg og 11% af fitu. Ég minnti hann á hverju kvöldi hvað hann yrði sáttur 15 des þegar að hann væri búinn að ná þessu og við færum út að borða og fagna, sýnist hann vera nokkuð sáttur! Verðlaunin fyrir utan betri heilsu og útlit var all inn á veitingarstað að hans vali and it’s time! Verð að þakka Egill Einarsson líka sem sá um fitumælingar og kenndi mér allar æfingarnar sem við gerðum
Allt hægt með ákveðni – og hjálp góðra vina!