Laugar Spa býður upp á allskyns lúxus húð- og líkamsmeðferðir sem næra bæði anda og sálu. Eftir dekur er svo tilvalið að skella sér í Baðstofuna og láta stressið líða úr sér.
Fyrir herrann sem elskar afslöppun þá er Draumur Herrans/Golfarans – tærasta snilld sem jólagjöf undir tréið í ár.
Dekrið hefst í Betri stofu Laugar Spa áður en herrann slakar vel á í léttu baknuddi þar sem notuð er heit 100% lífræn Laugar Spa olía til að mýkja og losa vöðvaspennu. Síðan er endurnærandi andlitsmeðferð sem sérvalin er fyrir hvern og einn. Herrann svífur svo aftur í Betri stofuna eftir austurlenskt höfuðnudd.
Aðgangur að Betri stofunni er innifalinn. Lengdin á meðferðinni er 75 mínútur – og er nú lækkað verð – 14.900 kr. – en var áður 17.900 kr.
Þess má geta að fjöldi dekurpakka er í boði sem hægt er að kynna sér HÉR – en nánar má sjá um gjafakortin HÉR!