Auglýsing

GOMOBILE er komið í samstarf við Vodafone!

GOMOBILE fagnar í dag veigamiklum áfanga þar sem fyrirtækið hefur skrifað undir samning við Vodafone. Samningurinn markar nýtt og spennandi upphaf þar sem lögð verður mun ríkari áhersla á lifandi, skemmtilegt og fjölbreytilegt samstarf sem mun nýtast öllum viðskiptavinum og samstarfsfyrirtækjum GOMOBILE.

„Við erum gríðarlega spennt fyrir samstarfinu við Vodafone og hlökkum mikið til komandi árs. Okkar meginmarkmið er að gera viðskiptavinum okkar kleift að nýta inneignir sínar með fjölbreyttari og skemmtilegri hætti en áður og mun fjöldi nýjunga líta dagsins ljós á árinu til hagsbóta fyrir viðskiptavini. Einnig leggjum við aukna áherslu á fjölda og fjölbreytileika samstarfsfyrirtækja um allt land,“ segir Hálfdan Steinþórsson framkvæmdastjóri GOMOBILE.   

Samningurinn hefur tekið gildi og munu viðskiptavinir GOMOBILE geta nýtt inneignir sínar í fjarskiptaþjónustu hjá Vodafone á næstu dögum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing