Viltu taka þátt í geggjuðu danspartýi fimmtudaginn 21. desember? Þá er tækifærið þitt í Hörpunni! Kauptu miða HÉR!
Yoga Moves & Cacao Tribe Iceland munu halda geggjað dans partý á myrkasta degi ársins. Þá verður stillt inn á bjartari tíma í Björtuloftum Hörpu en þaðan er magnað útsýni yfir miðborgina.
Við fögnum lífinu og hækkandi sól með kakó, ásetningi, tónlist, jóga, villtum dansi, hugleiðslu og möntrusöng. Júlía Óttarsdóttir og Tómas Oddur Eiríksson munu leiða stundina í sameiningu en þau hafa bæði margra ára reynslu í leiða fólk inná við og skapa upplífgandi og nærandi samverur.
Tveir af meðlimum plötusnúðateymisins ViBES, KrBear og KES munu sjá til þess að halda tónlistinni og taktinum flæðandi.
Hægt er að fá lánaða jógamottu en endilega koma með sína eigin.
Viðburðurinn er 21. desember og hefst kl 20:00 og stendur til 23:00.