Samkvæmt nokkuð traustum heimildum hafa forráðamenn Strætó í Reykjavík og lögreglan áhyggjur af meintu vændi í strætisvögnum. Tengist það vögnum sem ganga í Breiðholt og eru foreldrar það margir áhyggjufullir vegna þessa.
Þetta kemur fram á vefnum eirikurjonsson.is.
Þar segir að um sé að ræða stúlkur, allt niður í 16 ára, sem bjóða blíðu sína í vögnunum fyrir 10-30 þúsund krónur.
Starfsmaður Strætó segir að þetta viðgangist einnig, og ekki síður, á strætóstoppistöðvum:
“Þetta er huti af vímuefnavandanum í hverfinu,” segir hann.