Icelandair birti nýja auglýsingu á besta sjónvarpstíma ársins – eða rétt fyrir Áramótaskaupið. Það sem kannski ekki allir tóku eftir er að Icelandair laumaði léttu atriði inn sem hintaði að „Mile High“ club. En það er klúbbur fólks sem hefur stundað kynlíf í flugvélum.
Arnar Friðriksson benti á þetta í grúppunni Markaðsnördar á Facebook – og voru viðbrögðin jákvæð hjá þeim sem svöruðu.