Samkvæmt könnunum frá árunum 1989 til 2014 frá meira en 26.000 manns þá er greinilegt að fólk sem er í sambúð og er gift er að stunda minna kynlíf en það gerði hér áður fyrr. Þetta kemur fram á vefsíðu CNN.
En merkilegasta breytingin, eitthvað sem hefur verið akkúrat öfugt hingað til, er að nú stundar einhleypt fólk meira kynlíf en þau sem eru í sambandi.
Og samkvæmt fleiri könnunum og tölfræðigögnum mátti einnig sjá að:
- Það hafa aldrei verið fleiri einhleypir í heiminum
- Fólk lítur ekki á giftingu lengur sem lykilþátt í því að verða fullorðinn
- Ólíkt því sem áður var þá gefa sambönd fólki ekki endilega betri sjálfsálit
- Hjónabönd leiða ekki til betri heilsu, þrátt fyrir að það hafi áður fyrr verið talin almenn þekking
Við hvetjum fólk að sjálfsögðu ekki til að hætta í samböndunum sínum til að njóta ávaxta einhleypa lífsins, en þau sem eru ein geta staðið föst á því að það hefur einmitt aldrei verið betri tími til að vera einhleypur.