Vilt þú starta árinu með því að rækilega fræðslu og pepp til að verða besta útgáfan af sjálfum þér?
Þá er viðburðinn: „Bara það besta 2018“ – eitthvað fyrir þig – en uppselt var á viðburðinn í fyrra og mikil ánægja meðal þátttakenda. Skráning og miðasala á vefnum Enter HÉR!
Í ár eru átta flottir fyrirlesarar sem segja þér hvað hjálpar þeim dagsdaglega að vera besta útgáfan af sjálfum sér. Fyrirlesturinn verður haldin í Bíó Paradís 28. janúar kl 12:00-16:00.
Talað verður um allt frá markmiðasetningu, mataræði, svefnvenjum, núvitund og hvernig þú virkjar þig til þinnar hæstu tíðni. Kveikjum saman hugmyndir og neista til að gera 2018 að þínu besta ári.
Þessir fyrirlestrar eru í boði:
1. Leitaðu ekki lengra – Þú ert hetjan í þínu lífi – Ólafur Stefánsson
2. Ef þú þráir eitthvað nógu heitt að þá finnurðu leiðina, annars finnurðu bara afsökunina – Vilborg Arna Gissuradóttir
3. Spírallinn: Að snúa vítahring yfir í himnahring – Helgi Jean Claessen.
4. Hættu að væla. Farðu að kæla. – Vilhjálmur Andri Einarsson
5. Svefninn sem lykill að andlegri og líkamlegri heilsu – Erla Björnsdóttir
6. Að borða í núvitund – Leiðin að heilbrigðu sambandi við mat – Ragga Nagli
7- Leiðin að markmiðinu – Vökvaðu bestu fræin þín – Gerðu það sem þú vilt. – Matti Ósvald
8. Hamingjan hefst í meltingarveginum – Heiða Björk.
Skráning og miðasala á vefnum Enter HÉR!
Sjá nánar um fyrirlestrana hér að neðan.
1. Leitaðu ekki lengra – Þú ert hetjan í þínu lífi – Ólafur Stefánsson
Ólafur Stefánsson var sigursæll á sínum ferli í handbolta – og mun hann segja frá hvernig hann fann hetjuna í sínu eigin hjarta. Og hvernig þú getur gert það líka.
Ólafur var fjórum sinnum valinn íþróttamaður ársins á Íslandi. Hann vinnur nú með KeyWe – sem færir menntun barna í átt til hjartans og ímyndunaraflsins.
2. Ef þú þráir eitthvað nógu heitt að þá finnurðu leiðina, annars finnurðu bara afsökunina – Vilborg Arna Gissuradóttir.
Vilborg ætlar að segja frá hvernig hún sigraðist á sínu stærsta markmiði. Að sjá sólarupprásina á Everest, hæsta fjalli heimsins.
Vilborg á að baki afrek á heimsmælikvarða í fjalla- og pólförum. Hún er með BA í Ferðamálafræði og MBA frá Háskóla Íslands.
3. Að snúa vítahring yfir í himnahring – Helgi Jean Claessen.
Að vera fastur í viðjum vítahrings skapast af sektarkennd og skömm. Að snúa við úr háttum fórnarlambsins til heilarans– leyfir þér að lifa lífi með tilgangi og gleði í himnahringnum.
Helgi Jean er með tvær MSc gráður á sviði markaðsfræða og stjórnunar. Hann er rithöfundur og útgefandi – og með óbilandi áhuga á mannlegu hlið tilverunnar.
4. Að borða í núvitund – Leiðin að heilbrigðu sambandi við mat – Ragga Nagli
Þeir sem tileinka sér núvitund þegar þeir borða upplifa minni langanir í sætindi og komast í betri tengsl við svengd og seddu. Ragga opnar augu þín fyrir þessu einfalda en öfluga verkfæri sem er að nærast í núvitund.
Ragga Nagli er klínískur heilsusálfræðingur og einkaþjálfari – sem hefur notið vinsælda fyrir einlæg skrif um sálfræði og mataræði.
5. Hættu að væla. Farðu að kæla – Vilhjálmur Andri Einarsson
Andri hafði þjáðst af stanlausum verkjum, bakverkjum, taugaverkjum og mígreni til fjölda ára. Hann sneri lífi sínu alveg við með því að nýta sér mátt kuldans, sjósunds og kaldra kara. Hann missti 30 kíló – og fann frið frá verkjum sem höfðu plagað hann til fjölda ára.
Vilhjálmur Andri er núverandi Íslandsmeistari í ísbaði. Hann er einn fyrsti Íslendingurinn til að læra af ísmanninum Wim Hoff – og stefnir á þjálfararéttindi.
6. Svefninn sem lykill að andlegri og líkamlegri heilsu
Hvað er svefn? Hvað þurfum við mikið af honum? Erla talar um hvernig svefninn er besta leiðin til að finna andlegt og líkamlegt jafnvægi.
Erla Björnsdóttir hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi. Hún er stofnandi Betri svefns.
7. Hamingjan hefst í meltingarveginum – Heiða Björk.
Heiða hefur áhuga á meltingarveginum og leiðir í ljós hvernig hægt er að breyta lífinu með praktískum ráðum að bættri meltingu.
Heiða Björk er umhverfisfræðingur, jógakennari og næringarþerapisti, kennari og sagnfræðingur og fléttar þessu öllu saman í sinni fræðslu.
8. – Vökvaðu bestu fræin þín – Leiðin að markmiðinu – Gerðu það sem þú vilt. – Matti Ósvald
Matti hefur einstaka trú á fólki og að það búi sjálft yfir því sem þarf til að komast að sínum besta eða betri áfangastað. Hann sýnir hvernig fólk getur verið meira og meira það sjálft í öllu því sem það mætir í daglegu lífi og á vinnustað.
Matti vinnur með markþjálfun, auk fyrirlestra, fyrir Ljósið stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda, einstaklinga í starfsendurhæfingu og skjólstæðinga hjá Virk ásamt stjórnendum í bæði fyrirtækjum og bæjarstjórnum.
Skráning og miðasala á vefnum Enter HÉR!