Upprunalega Karate Kid myndin var ein vinsælasta bíómynd síns tíma. Síðan hafa margar persónur í þáttum og bíómyndum látnar herma eftir því sem gerðist í henni (td með „wax on, wax off“ – eða sparkinu fræga) eða dýrka myndina, eins og Barney í How I met your mother.
En Barney var á því að aðal characterinn í upprunalegu Karate Kid hefði ekki verið Danny LaRusso (leikinn af Ralph Macchio) heldur Johnny Lawrence (leikinn af William Zabka) hjá Cobra Kai – og mögulega hafði hann rétt fyrir sér.
Því að nú er að koma þáttröð sem gerist 34 árum eftir þennan fræga bardaga í upprunalegu myndinni – nema í þetta sinn þá virðist Johnny einmitt vera í aðalhlutverki:
Ert þú spennt/-ur?