Auglýsing

Góðar fréttir – VARGURINN snýr aftur á Hamborgarafabrikkuna!

Gæsaborgarinn Vargurinn seldist upp á mettíma á Fabrikkunni í febrúar.

Birgðirnar sem talið var að myndu endast í um 2 mánuði voru uppurnar með öllu á tæpum fjórum vikum.

„Þetta er langvinsælasti off menu hamborgari sem við höfum tekið inn og hann kláraðist eiginlega strax. Það urðu þónokkrir fyrir vonbrigðum, enda margir unnendur íslenskrar villibráðar sem áttu eftir að smakka hann“, segir Jóhannes Ásbörnsson,
einn eigenda Hamborgarafabrikkunnar.

KEMUR Á SUMARDAGINN FYRSTA
Það munu margir kætast við þessar fréttir en Vargurinn kemur aftur fimmtudaginn 19. apríl, á Sumardaginn fyrsta.

„Það er frábært að geta boðið viðskiptavinum okkar Varginn á ný, en rétt að ítreka að það verður í mjög takmarkaðan tíma, enda er hráefnið af skornum skammti“, segir Jóhannes.

EINSTAKUR VILLIBRÁÐARBORAGRI
Vargurinn er 120 g. íslenskur gæsaborgari í Brioche brauði með Aðalbláberjasultu frá Völlum í Svarfaðardal, grófkorna sinneps- og hunangssósu, bræddum Havarti osti og klettasalati.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing