Þá sjaldan að huggulegir bílar eru til sölu – þá gæti þessi Benz CLS 63 AMG verið til sölu.
Hér er um að ræða enga smá græju sem Brynjar Morgan Eldri setti inn á Brask og brall:
Hann segir:
Vinsamlegast enga dekkjasparkara. Hef ekki þolinmæði fyrir fávita !
Væri til að skipta á honum á nýlegum dýrari pickup og eða ódýrari.
Upgrades: 49,898$
Einn af 3 svona breyttum í heiminum.
Bíllinn er síðan nokkuð öflugur líkt og sést.
Bens CLS 63 AMG Model 2008
8cyl 6,2L Engine
Ek aðeins 74 þús km.
0-100km sirka 3,8sek
Hámarkshraði einhvers staðar yfir 350+ km
Upgrades: 49,898$
Já ekki ónýtt að taka einn Laugaveg á þessum. Eða já … hann er reyndar lokaður í sumar. Spurning með Njálsgötuna?