Örugglega margir Íslendingar hafa nýtt sér þjónustuna hjá Uber þegar þeir eru í útlöndum. Þessi maður fór í Uber en á meðan hann var í bílnum náði Uber-bílstjórinn sér í auka farþega, sem getur alveg komið fyrir nema þetta var ekki venjulegur farþegi.
Samkvæmt farþeganum var konan sem bílstjórinn tók upp í vændiskona og hún fór í frekar vafasamar aðgerðir á bílstjóranum á meðan farþeginn sat aftur í.
Farþeginn var alls ekki sáttur með þetta og hraunaði yfir Uber á Twitter og sagði að líf hans hafi verið í hættu þar sem bílstjórinn var ekki með augun á veginum.